Ađalvalmynd

Leit

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Jól 2006

24. desember 2006 klukkan 23:09
GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR



Jólakveðjur,
 Sandra
Sandra Júlía

Sandra litla veika :(

04. nóvember 2006 klukkan 04:32
Jæja þá.. ákvað að skella hérna inn litlu bloggi vegna þess að það eru 1 mánuður plús nokkrir dagar síðan ég bloggaði seinast og þetta gengur ekki lengur Skömmustulegur Ég sem ætlaði að vera þvílíkt dugleg með nýju bloggsíðuna.. Einnig er önnur ástæða, ég er veik og hef nákvæmlega EKKERT annað að gera en að láta mér leiðast og vera veik.. aumingja ég.. Það tók mig örugglega svona rúmlega 20 tilraunir að komast hérna inná, gat ekki fyrir mitt litla líf munað notendanafn og lykilorð! Prufaði öll password sem ég hef nokkurn tímann búið til en ekkert gekk.. svo LOKSINS virkaði eitthvað.. Jeij! Svalur 

Það sem hefur gerst já.. við í matklúbbnum LOKAL (ég, Ása, Bryndís og Andrea) skelltum okkur uppí bústað seinasta föstudag og í þetta sinn var pasta á matseðlinum eftir ÓGEÐSLEGA GÓÐU pizzuna sem við gerðum í síðustu viku.. nammmm.. Sumarbústaðarferðinni má lýsa í 3 orðum: át, prumpulykt og sjónvarpsgláp! Skelli kannski inn nokkrum myndum þegar Slauga hefur sett þær inná netið Glottandi

Síðan var náttlega vetrarfrí sem ég naut í botn.. gerði nákvæmlega eiginlega ekki neitt hehe

Nenni þessu ekki lengur.. en ég verð að koma með nokkrar shocking staðreyndir hérna í endann..

Það eru...

31 dagur í að jólaprófin byrja!
41 dagur í að jólaprófin eru búin!
51 dagur í aðfangadag!
58 dagar í gamlárs!

Kv. Sanders Svalur

IMG 5599
Minns og Jói seatpartner
Sandra Júlía

Busaball, Nemóprufur, lćrdómur ofl.

22. september 2006 klukkan 20:14
Ví loksins komin helgi! Sorry hvað ég hef verið löt að blogga, en internet tengingin á heimili mínu dó í þarsíðustu viku en lifnaði við á ný bara í fyrradag eða eitthvað Hissa En já.. það sem hefur gerst síðan seinast er busaballið auðvitað.. Glottandi Fyrirpartý heima hjá Hirti í bekknum og síðan var haldið af stað niðrá Broadway, fólk misdrukkið og troðningur dauðans.. samt var ballið bara mjög skemmtilegt og alltof fljótt að líða!
Síðan ákváðum við Andrea að skella okkur í dansprufur fyrir Nemó sýninguna  Svalur Gekk það bara svona ágætlega og ég komst áfram í framhaldsprufurnar sem voru í gær.. komust 26 áfram af svona 90 sem tóku þátt.. jeij! og nú er bara að bíða og sjá hvort Sandersinn hafi verið að gera sig eða ekki heheBrosandi 
Annars stefnir þessi helgi í endalausann lærdóm.. prófin eru hlunkast yfir, 2 í næstu viku og síðan 2 í vikunni þar á eftir plús ritgerð og lesa Sjálfstætt Fólk bókina sem er alltof löng.. úff..

En ég verð að þjóta..blogga vonandi fljótlega..

Sandra kveður með bros í hjarta  

Sandra Júlía

Blogg?

08. september 2006 klukkan 00:24
Ég held að það sé bara komin tími á eitt stykki blogg.. Brosandi Þar sem ég hef frá svo rosalega mörgu að segja *not*.. En allavega, það var farið í útilegu með bekknum á laugardaginn.. það var SPES! Ég, Andrea, Ása og Bryndís lögðum af stað um 5 leitið á laugardeginum (tók reyndar aðeins meiri tíma að koma sér af stað heldur en var reiknað með) með viðkomu á ættarmóti hjá Ásí. Hélt að það væri svona 5 mínútur frá staðnum sem við vorum að fara í útilegu á, en nei nei.. í hina áttina auðvitað.. en það var barasta allt í fína, vorum ekkert að drífa okkur  Ullandi

Þegar komið var í Árnes uppgötvuðum við að fallega tjaldið okkar var MYGLAÐ! Frábært! Því var pakkað saman aftur og vonandi hent. Um kvöldið var mikið sungið og skemmt sér... og síðan snemma á sunnudeginum var förinni haldið heim á leið. Ég og Ása gistum semsagt í bílnum.. það var alveg fínt nema þegar ég var að frjósa úr kulda og setti miðstöðina í botn, síðan svona 10 mínútum seinna vaknar Ása í gufubaði.. hahaha


Ása og ég ferskar í útilegu..


Núna er minns veik, er með hita og hálsbólgu dauðans.. vonandi að það fari sem fyrst Óákveðinn Busaballið í næstu viku og fleiri skemmtilegheit..



Ég kveð að sinni
Sandran





Sandra Júlía

MYNDIR!

04. september 2006 klukkan 22:39

Hola! Var að skella inn nokkrum myndum frá helginni hérna undir "Myndir" Glottandi Lofa að blogga þegar ég nenni Ullandi

Sanders

Sandra Júlía

Tileinkađ Lilju!

28. ágúst 2006 klukkan 22:11
Hello everybody! (eða já, þeir sem nenna að skoða þessa síðu mína :P) Ég ætla að tileinka þessa færslu yndislegri vinkonu minni og bekkjarsystur, henni LILJU!! Lilja og Björgvin Halldórs eru víst eitt..  hún tjáði mér þær sorglegu fréttir í dag að það seldist upp á BÓ tónleikana um helgina á 2 tímum.. aumingja Lilja, vonandi að hún nái sér eftir þetta áfall Glottandi
 

Ég var að taka eftir að það eru alveg komnir heilir 3 dagar síðan ég bloggaði síðast! Í dag er mánudagur sem þýðir að það er vika síðan skólinn byrjaði.. úff mér finnst eins og það séu 2 dagar síðan í mesta lagi. Af hverju þarf tíminn að líða svona ÓGEÐSLEGA hratt?? Það verða komin jólapróf áður en ég veit af og síðan sumarfrí í beinu framhaldi.. þarf aðeins að fara hægja á sér þessi tími.

 

Helgin var mjög skemmtileg bara. Á föstudaginn ákváðum ég og Ragna að skella okkur í bíó.. en NEI, það var röð út úr bíóinu! Glætan að við nenntum að bíða þar þannig að við fengum okkur bara ís í rólegheitunum. Laugardagurinn var snilld! Ég og Honey Lillie (aka Hanna Lilja) vorum búnar að ákveða á föstudeginum að fara í kvenna golfmót uppí sveit.. reyndar var þetta bara rétt hjá Mosfellsbænum en mér leið eins og við værum komnar lengst uppí sveit.. hehe.. En já, þetta golfmót var fyndið.. við spiluðum með konu sem var svo stressuð að það var rosalegt hahahaha Brosandi Síðan til að toppa þetta allt kom mesta rigning sem ég hef á ævi minni séð, þetta var eins og sturta.. vantaði bara sjampóið og þá hefði þetta verið fullkomin sturta Brosandi Hanna krútt kom, sá og sigraði í keppni um besta skor, endaði með að fara í bráðabana sem hún var látin vita af þegar við vorum komnar heim.. haha og einnig hirti hún næstum öll verðlaunin í mótinu.. hehehe

 

Um kvöldið var kveðjupartý hjá Kristínu Lovísu sem var með mér í bekk í fyrra. Hún er að fara sem skiptinemi til Þýskalands í ár. (Væri alveg til í að gera eitthvað svona skemmtilegt, ennnnn.. ætli maður sé ekki orðinn of seinn) Partýið var fínt, sumir mjög ölvaðir og aðrir minna ölvaðir haha.. kvöldið endaði svo með því að ég, Andrea og Jóakim fórum á Stuðmannaball í íþróttahúsinu á Nesinu.. VÁ það var OF gaman! Nokkrar myndir frá kvöldinu: Brosandi


Ása og Andrea hjá Sævari


 Ása (hahahaha), Andrea og ég



Andrea, Gulla og Maggi


Ásí og Minns


 Vísir er alltaf hress Brosandi

Held að þetta sé komið gott í bili.. bara nokkuð ánægð með þessa færslu hjá mér! Ekki láta litaþemað fara með ykkur.. bara svona að prófa Ullandi

 

Bleee

Sandra
Sandra Júlía

Tileinkađ Ţorsteini Júlíusi

24. ágúst 2006 klukkan 00:01

Hæ aftur! Ég hef ákveðið að tileinka þessa færslu einum heitasta aðdáandi síðunnar, Þorsteini Júlíusi, betur þekktur sem Júlli Svalur 

Síðan síðast hefur mikið gerst. Skólinn komin af stað og það er bara mjöööög gaman! Var orðin soldið leið á þessu sumarfríi og bara fínt að komast aftur í myglaða skólastofuna Glottandi Reyndar eru komin einhver neonljós eða ljósabekkjaljós (maður verður samt ekki brúnn) inní stofuna sem eiga að hindra þunglyndi (var mér sagt, veit ekki hversu satt það er), en eina sem þau gera mér er að valda hausverk. Þannig að ég er búin að vera með hausverk tvo daga í röð..

En næstu helgi, ekki núna heldur helgina þar á eftir, er búið að plana bekkjarútilegu.. það er spurning um hvort maður láti sjá sig. Ég er samt ALLS EKKI útilegu týpan, alltaf að frjósa úr kulda Skömmustulegur Svo var ég að fatta að það er golfmót sömu helgi!! Týpískt! Af hverju þarf alltaf allt að gerast á sama tíma?! Svo gerist ekkert á milli.. glatað..

Er að pæla í að hella mér yfir General Chemistry bókina mína fallegu.. hún er á ensku og er þykkari en allt..

Sandersinn kveður með bros á vör


Ég og Ragna lil sis




Sandra Júlía

Ný bloggsíđa

22. ágúst 2006 klukkan 02:07
Halló allir! Þetta er nýjasta bloggsíðan mín og ég ætla að reyna mitt besta við að vera dugleg að blogga Svalur Þess má geta að þetta er 4 bloggsíðan mín (eða 5?), man það ekki... þær eru allavega orðnar of margar Ullandi


En já, það helsta sem er að gerast þessa dagana er auðvitað að skólinn er að byrja! Fór á skólasetningu í dag, það var bara fínt.. gaman að sjá alla aftur og svoleiðis. Svo byrjar þetta bara á morgunn kl. 08:50 á tvöföldum líffræðitíma.. áttum meira segja að læra heima!! Hvað er málið með heimavinnu ÁÐUR en skólinn er byrjaður? Úff..

Er bara í 6 fögum.. engri ensku og engri þýsku.. bara stæ, ísl, líffræði, íþróttum, eðlisfræði og efnafræði.. þetta verður svakalegt

Seinasta miðvikudag fórum við stelpurnar í GR (ég, Hanna, Tinna, Beggz, Ástrós og Ólafía) ásamt Helenu liðsstjóra til Vestmannaeyja að keppa í sveitakeppninni. Það var GEEEÐVEIKT! Vá, pottþétt skemmtilegasta golfferð sem ég hef farið og eru þær orðnar nokkuð margar Brosandi Því miður eigum við Hanna aldrei eftir að fara aftur í sveitakeppni unglinga Gráta En þá er stefnan bara sett á sveitakeppni kvenna..

Það helsta sem gerðist í Eyjum.. það var étið of mikið af nammi og endaði það með ælu.. hahaha.. og síðan vorum ég, Hanna og Ólafía teknar af löggunni og inní löggubíl fyrir að vera í spilakössum sem við megum vera í! Þessar löggur þarna eru frekar glataðar, hafa ekkert annað að gera á laugardagskvöldi heldur en að vera taka 18 ára stelpur fyrir að vera í spilakössum.. en já, það var tekin kennitala og fullt nafn og síðan einhver "hræðslu-ræða" frá einni löggunni.. við hlógum nú bara..

Síðan var auðvitað farið að spranga, nema ég sprangaði ekki vegna þess að ég kann það ekki.. Ekki það að stelpurnar hafi kunnað það... hehehe.. svo auðvitað var tekið myndaflipp á þetta..
 

The gang.. allar nema Helena sem tók myndina


HonoLulu


Groovy Girls (Ólafía, Tinna, Hanna, Helena, Ástrós og Beggz)


Sanders þreytta


Tvíeykið sem vann alla leikina nema einn.. hehe (Ég og Tinna)

(Það koma fleiri myndir í "Myndir")

Við enduðum í 2 sæti í sveitakeppninni, hefðum auðvitað viljað vinna eeeen 2 sæti er bara ágætt! Betra en 3. allavega.. Glottandi

Ég fer að setja þetta gott í bili, örugglega mín lengsta færsla á ferlinum enda er þetta búið að taka laaangan tíma.. Er að pælí að fara horfa á Melrose á Skjá1 Plús bara...

Ble í bili
Sanders
Sandra Júlía

Innskráningar kubbur